Snorri hringdi áðan. Pegasus vélin sem rúntar milli Skandinavíu og Kabúl er föst í Istanbúl vegna veðurs og allar ferðir vikunnar frestast um einn dag. Ef Guð lofar, verður það bara einn. Síðustu fréttir eru því þær að Snorri kemur ekki fyrr en á Þorláksmessu. Vonandi. Hringdi hingað og þangað til að redda öllu sem hann ætlaði að gera á Þorláksmessu, því ég er föst í búðinni. Hann ætlaði reyndar sjálfur að hringja í pabba sinn og biðja hann að ná í jólagjöfina mína... og jólatréð, sem búið er að taka frá fyrir okkur í Flugbjörgunarsveitinni.
Krappóla á myglaðri brauðsneið með súrri undanrennu!!!
Og svo er ég með magapest... bööööööö
7 Comments:
æææ, skelfing er að heyra þetta.
láttu þér batna fljótt og vonandi reddast þetta með Snorra.
og svo finnst mér vanta tengil á ömmuruth á síðunni þinni...
Jahá, góður punktur! Kann barikki að setja soleiðis inn. Fæ einhvern til að redda því fljótlega.
Við leggjumst á bæn - ég vona svo sannarlega að maðurinn komist heim í jólin til þín....
Já, það vona fleiri - þetta eru fyrstu jólin í þrjú ár sem við erum öll saman, hann, Strumpur og ég. Vonandi...
allir puttar og tær krossaðir/ar
skal kíkja á þig fljótlega og setja tengil.
Eitthvað að frétta af heimferðarmálum þíns elskaða?
Æ blómið mitt...
Post a Comment
<< Home