Um kaffileytið fékk ég SMS: er i tirklandi (minn er svoldið bleslindur, eða a.m.k. britlindur). Áðan fékk ég símtal: Hæ, er að ná í farangurinn. Við erum komnir til Noregs.
Látum nú veðrið sleppa þeim alla leið til Íslands á morgun!
Undarlegur aðfari jóla. En hlutirnir hafa tilhneigingu til að reddast!
Mikið vona ég að þetta allt saman gangi upp og þú getir knúsað og kysst hann Snorra þinn í klessu þegar hann kemur heim. Og svo verð ég nú að kíkja í búðina þína næst þegar ég verð á ferð í febrúar. Er nefnilega með netta antík dellu. OG svo verð ég nú að linka inn á þig, þetta jaðrar við dónaskap af minni hálfu. Annars gleðileg jól mín kæra og takk fyrir skemmtilegu "samtölin" á árinu sem er að líða.
43 ára, gift honum Snorra Hrafnkelssyni, sem vinnur í Afghanistan, fyrir friðargæsluna. Á hann Ragga (Nicolas Ragnar Muteau) með mínum fyrrverandi. Er enskukennari að mennt og hef kennt í Vogaskóla (voða gaman). Rek litla antikverslun í kjallaranum heima í Skipasundi 82, þar sem hægt er að fá eldri og heldri borðbúnað. Vinn svo með því á 101hotel, þar sem ég er aðstoðarmaður framkvæmdastjóra. Mjög skemmtilegt starf og áhugaverður vinnustaður. Hangi mikið á eBay fyrir búðina en hef annars gaman af því að sauma bútasaum (í höndunum, takið eftir), ferðast, borða góðan mat, fara á góðar kvikmyndir og í leikhús og óperur, spila svolítið sjálf, synda í sjónum (við hæfilegt hitastig í útlöndum) og eiga gott líf. Berst reyndar við vefjagigt og þunglyndi en held því skefjum með ýmsum ráðum. Líkamlegir verkir eru þó mun skárri en andlegir... Læt þessa bansettu sjúkdóma þó sjaldan leggja mig. Baráttukveðjur til allra á sama báti!!!
3 Comments:
Mikið vona ég að þetta allt saman gangi upp og þú getir knúsað og kysst hann Snorra þinn í klessu þegar hann kemur heim. Og svo verð ég nú að kíkja í búðina þína næst þegar ég verð á ferð í febrúar. Er nefnilega með netta antík dellu.
OG svo verð ég nú að linka inn á þig, þetta jaðrar við dónaskap af minni hálfu.
Annars gleðileg jól mín kæra og takk fyrir skemmtilegu "samtölin" á árinu sem er að líða.
Kærar þakkir og ég hlakka mikið til að sjá þig í febrúar! Jóla þig hér með í bak og fyrir...
gleðileg jól kæra Ester, vona að þú og þitt fólk hafið það gott yfir hátíðirnar:)
Post a Comment
<< Home