Óvæntri og afskaplega gleðilegri þungun minni, sem við hjónin vorum alveg búin að gefa upp á bátinn fyrir mörgum árum, er lokið. Ekki með fæðingu, heldur náði fóstrið ekki nema 9-10 vikna þroska og lést svo. Aðgerð í fyrramálið til að hreinsa út.
Bóndinn er á leiðinni heim frá Afganistan og nánustu vinir og fjölskylda umlykja mig en svartnættið er samt innan seilingar.
Sorg borin á torg? Kannski. Það verður þá bara að hafa það.
43 ára, gift honum Snorra Hrafnkelssyni, sem vinnur í Afghanistan, fyrir friðargæsluna. Á hann Ragga (Nicolas Ragnar Muteau) með mínum fyrrverandi. Er enskukennari að mennt og hef kennt í Vogaskóla (voða gaman). Rek litla antikverslun í kjallaranum heima í Skipasundi 82, þar sem hægt er að fá eldri og heldri borðbúnað. Vinn svo með því á 101hotel, þar sem ég er aðstoðarmaður framkvæmdastjóra. Mjög skemmtilegt starf og áhugaverður vinnustaður. Hangi mikið á eBay fyrir búðina en hef annars gaman af því að sauma bútasaum (í höndunum, takið eftir), ferðast, borða góðan mat, fara á góðar kvikmyndir og í leikhús og óperur, spila svolítið sjálf, synda í sjónum (við hæfilegt hitastig í útlöndum) og eiga gott líf. Berst reyndar við vefjagigt og þunglyndi en held því skefjum með ýmsum ráðum. Líkamlegir verkir eru þó mun skárri en andlegir... Læt þessa bansettu sjúkdóma þó sjaldan leggja mig. Baráttukveðjur til allra á sama báti!!!
8 Comments:
Mikið er leiðinlegt að heyra þetta. Ég samhryggist þér innilega, hef sjálf upplifað það sama fyrir löngu síðan.
Æ, elskan mín, mikið var leiðinlegt að heyra þetta. Ég samhryggist þér innilega. Gott að þú ert umvafin góðu fólki. Sendi fallegar hugsanir til þín.
Elsku besta stúlka mín. Mikið eru þetta sorglegar fréttir. Ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðjur og hugur minn er hjá þér
Sendi þér mínar innilegustu samúðarkveðjur og í leiðinni stórt faðmlag. Hugsa til þín og sendi þér hlýja strauma.
æ, ömurlegt. samhryggist þér innilega.
farðu vel með þig.
Mikið var leiðinlegt að heyra þessar fréttir elsku Ester og Snorri. Hugsum til ykkar og sendum innilegar samúðarkveðjur.
Þetta voru leiðinlegar fréttir. Ég samhryggist þér. Hugsaðu nú vel um sjálfa þig.
Innilegar samúðarkveðjur. Ég veit af eigin reynslu hvað þetta er sárt og ég sendi þér og fjölskyldu þinni hlýjar hugsanir.
Post a Comment
<< Home