Öfugsnúinn sólarhringur til hálfs
Eiginlega sofna ég ekki fyrr en undir morgun og vakna svo upp úr afar óþægilegum draumförum, sveitt og súr, undir hádegið. Fátt man ég af draumförum nema að ég var m.a. hálfa nótt að skafa kísil innan úr sturtuhurðunum. Þetta flokkast víst seint undir martröð, en samt ekki neitt skemmtiefni. Vá, í hverju ætli undirmeðvitundin sé að pæla, fyrst mig dreymir svo þungt um svo ómerkilegt efni... Ekki viss um að ég vilji vita það. Þetta er eitthvað hevví anal...
5 Comments:
ósköp er að heyra þetta, næst þegar þig dreymir svona skafi-kísil-draum, náðu þá í edik-drauma-spreibrúsa og notaðu hann frekar. þá verður þú ekki eins þreytt þegar þú vaknar:)
Ertu alveg viss um að tími sé kominn á kalkún?
Takk fyrir gott ráð, baun.
Kristín: Já, ég verð víst að láta mig hafa þetta. Spurning hvort mig langar nokkurn tímann í fylltan kalkún að nýju...
Óþægilegar draumfarir eru nett bærilegri þó en óþægilegar samfarir. Huggaðu þig við það:) Svo er altaf hægt að glugga í Hallgrím Helga.. Garinteraður svefn...
Ókei! Hallgrímur Helga. Þabasona. Er reyndar að lesa The Sewing Circles of Herat, sem er áhugaverð en frekar syfjandi bók. Allt kemur fyrir ekki.
Post a Comment
<< Home