Amma Ruth á afmæli!
Í dag er semsagt afmælishátíð og 70% afsláttur af völdum vörum (Hildigunnur - m.a. af meðdiskum í stíl við bollana sem þú fékkst hjá mér...). 10% afsláttur er svo af öðru til vina og vandamanna, þ.m.t. blogglesenda. Það eina sem ekki er á afslætti eru vörur sem ég er með í umboðssölu.
Sérrí og konfekt handa öllum á meðan birgðir endast!
Mikið væri gaman að sjá ykkur sem flest.
3 Comments:
oooo, vildi að ég hefði séð þetta fyrr...er ákveðin í að kíkja til þín við fyrsta tækifæri.
til hamingju með ömmu:)
Til hamingju með afmælið. Segir Parísardaman þó kallinn hennar sé tengdur núna.
kíkið endilega á Ömmu Ruth, ég fékk sko diskana mína í dag. Get nú boðið í fínasta hversdagskaffi og te í bænum :-)
Post a Comment
<< Home